Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eyrargata 16C
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 69
8. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Áður á dagskrá á fundi 58. Þórey Gylfadóttir sækir um leyfi til að rífa núverandi mhl 02 geymslu 38,2 m2 og byggja þess í stað bílgeymslu skv. uppdráttum ProArk. Helstu stærðir 126,5m², 469,9m³
Svar

Byggingaráform hafa verið grenndarkynnt og var athugasemdafrestur til 15. júní 2021. Engar athugasemdir bárust.

Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

820 Eyrarbakki
Landnúmer: 166045 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001036