Heiðarstekkur 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 54
25. nóvember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Bjarg íbúðarfélag sæki um leyfi til að byggja tvö fjölbýlishús og hjólageymslu. Alls 28 íbúðir. Brúttóstærðir: 1.943,7 m2 og 5.030,8 m3
Svar

Gögn liggja fyrir skv. byggingarreglugerð gr. 2.4.2. Byggingaráform samþykkt með fyrirvara um samþykki byggingarnefndar á hönnun lóðar sbr. gr. 5.6.1 í greinargerð deiliskipulags.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar tilskildum gögnum hefur verið skilað sbr. gr.2.4.4 í byggingarreglugerð, með fyrirvara um að brugðist verði við athugasemdum eldvarnareftirlits.