Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Nauthagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 40
20. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 79. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 20. október, liður 2. Aðalskipulagsbreyting - Nauthagi.
Tillaga að aðalskipulagsbreytingu fyrir Nauthaga var auglýst frá 25. ágúst 2021, með athugasemdafresti til og með 6. október 2021. Tillagan tók til breytinga á hluta af vestasta reit ú2 þar sem íbúðarbyggð kæmi í stað opins svæðis til sérstakra nota. Vestasti hluti ú2 er um 8.000m2 að stærð og minnkaði hann í um 6.200m2. Fyrirhuguð íbúðarlóð var u.þ.b. 2.000m2 að stærð og á henni var gert ráð fyrir um 700m2 byggingu með 6-8 íbúðum á einni hæð. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Umsagnir höfðu ekki borist frá lögbundnum umsagnaraðilum. Með fyrirvara um jákvæðar umsagnir umsagnaraðila og að þær leiði ekki til breytinga á tillögunni, lagði skipulags- og byggingarnefnd til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til staðfestingar í samræmi við 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.