Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Nauthagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 67
5. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi var send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Í svarbréfi stofnunarinnar dags. 29. apríl 2021 er ekki fallist á að um óverulega breytingu sé að ræða og mælt með því að farið verði með breytinguna samkvæmt 30. og 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða.