Opinber störf á landsbyggðinni
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 80
9. júlí, 2020
Annað
Fyrirspurn
Bókun frá fundi byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, frá 16. júní sl.: Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar ákvörðun félags- og barnamálaráðherra um fjölgun starfa hjá brunamálasviði Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Sauðárkróki. Slíkt er í anda stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni og kemur jafnframt fram í ríkisstjórnarsamþykkt þar um. Fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni er landsbyggðarsveitarfélögum þýðingarmikið og mikilvægur þáttur í að efla atvinnu og auka fjölbreytileika atvinnulífs hjá fjölmörgum sveitarfélögum landsbyggðarinnar. Sveitarfélög landsbyggðarinnar eru misjöfn að stærð og gerð en eiga það öll sammerkt að fjölgun opinberra starfa eykur samkeppnisfærni þeirra og skapar þeim tækifæri til vaxtar og framþróunar. Byggðarráð hvetur stjórnvöld til áframhaldandi góðra verka er kemur að fjölgun opinberra starfa hjá landsbyggðarsveitarfélögum og skorar á önnur sveitarfélög að taka undir áskorun byggðarráðs um eflingu og fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni.
Svar

Bæjarráð tekur undir bókun byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar um nauðsyn þess að fjölga störfum á landsbyggðinni. Sveitarfélög landsbyggðarinnar eru misjöfn að stærð og gerð en eiga það öll sammerkt að fjölgun opinberra starfa eykur samkeppnisfærni þeirra og skapar þeim tækifæri til vaxtar og framþróunar.