Ákvörðun ráðherra - starfhæfi sveitarstjórna og auðvelda ákvörðunartöku við stjórn sveitarfélaga Covid19
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 22
24. mars, 2020
Annað
Fyrirspurn
Þriðjudaginn 17. mars 2020 samþykkti Alþingi breytingar á sveitarstjórnarlögum sem ætlað er að skapa sveitarfélögum svigrúm til að bregðast við neyðarástandi og tryggja að sveitarstjórnir verði starfhæfar. Breytingarnar kveða á um að ráðherra geti veitt sveitarstjórnum tímabundna heimild til að víkja frá tilteknum ákvæðum sveitarstjórnarlaga til að sveitarstjórn sé starfhæf við neyðarástand og til að auðvelda ákvarðanatöku. Þetta er gert til að bregðast við aðstæðum sem hafa skapast vegna COVID-19 faraldurs. Í greinargerð með frumvarpi til laganna segir að rétt þyki að rýmka reglur um fjarfundi til að bregðast við tilmælum yfirvalda um sóttvarnir, án þess að það torveldi ákvarðanatöku innan stjórnkerfis sveitarfélaga. Auglýsing um ákvörðun ráðherra var birt í B-deild Stjórnartíðinda 19. mars 2020.
Forseti leggur til að bæjarstjórn samþykki að heimila fjarfundi bæjarstjórnar og nefnda og ráða Sveitarfélagsins Árborgar í samræmi við nýsamþykkt lög.
Svar

Til máls tók Helgi S. Haraldsson, forseti.
Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum.