Viðauki við fjárhagsáætlun 2020 - Viðauki 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 29
30. nóvember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Afgreiðslur nefnda í tengslum við þessa viðauka:
Tillaga frá 91. fundi bæjarráðs frá 22. október sl. liður 12. Kaup á lóð að Kirkjuvegi 18. Kauptilboð í sökkul húss við Kirkjuveg 18 Selfossi.
Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að kaup sveitarfélagsins á lóðinni yrðu samþykkt. Samhliða yrði lögð fram tillaga að viðauka vegna málsins.
Tillaga frá 91. fundi bæjarráðs frá 22. október sl. liður 13.1906288 - Stefna gegn Árborg - höfnun á ráðningu grunnskólakennara Óskað var staðfestingar bæjarráðs á lúkningu málsins með bótagreiðslu sem skiptist til helminga milli ríkis og sveitar.
Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 9. júlí sl. og var þá bókað: Ósk mennta- og menningarmálaráðuneytis um afstöðu Árborgar til áfrýjunar á dómi Héraðsdóms E-3026/2019 Bæjarráð taldi fyrir sitt leyti ekki efni til að áfrýja dómnum.
Bæjarráð fellst á umrædda bótagreiðslu og 50% hlutdeild sveitarfélagsins í henni og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun vegna útgjaldanna.
Svar

Viðauki nr. 8 er borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða með 8 atkvæðum. Ari B. Thorarensen, D-lista situr hjá.