Viðbragð vegna Kórónaveirunnar og Covid-19
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 86
10. september, 2020
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 31. ágúst þar sem vakin er athygli á eftirfarandi: Ríkisstjórnin samþykkti á fundi þann 28. apríl sl. að beina því til samráðsnefndar ríkis og sveitarfélaga að setja á fót greiningarhóp til að vinna að tvíþættu verkefni. Annars vegar að safna upplýsingum um fjárhagsáætlanir og fjárhagsstöðu einstakra sveitarfélaga fyrir yfirstandandi ár, þróun þeirra og horfur og hins vegar að safna upplýsingum um einstaka þætti sem ljóst þykir að muni hafa mikil áhrif á afkomu sveitarfélaga á komandi mánuðum og misserum. Tilefnið er að bregðast við þeim aðstæðum sem myndast hafa í kjölfar Covid-19 faraldursins en ljóst er að áhrif hans verða mikil á efnahagslífið allt og þar með talið fjármál ríkis og sveitarfélaga.
Svar

Bæjarráð Svf. Árborgar skorar á ríkisstjórn Íslands að bregðast við þeim tekju- og útgjaldavanda sem sveitarfélög í landinu glíma við vegna Covid-19 og mun reyna mjög á fjárhag íslenskra sveitarfélaga árin 2020 og 2021.
Allt önnur lögmál gilda um skuldasöfnun ríkissjóðs en sveitarfélaganna. Mikil skuldasöfnun sveitarfélaga mun skerða getu þeirra til viðspyrnu og þjónustu á næstu árum og því mikilvægt að leitað verði annarra leiða.
Útsvarstekjur sveitarfélaganna skerðast verulega vegna Covid-19, eins og fram hefur komið. Ofan á það bætist tekjuskerðing vegna lækkaðra framlaga úr Jöfnunarsjóði. Á sama tíma kallar ríkisstjórn Íslands eftir auknum fjárfestingum til örvunar atvinnulífs og uppbyggingar innviða.
Það er ekki nóg með að tekjur sveitarfélaga lækki, heldur hafa útgjöld aukist og mikil þörf er fyrir aukna samfélagslega þjónustu. Það er mikilvægt að ríkissjóður styðji sveitarfélögin til þess að standa í framlínu, verja íbúa gegn áföllum og blása samfélögunum í brjóst afli til þess að vinna gegn kreppu og samdrætti.
Nú er því ekki rétti tíminn til að draga saman seglin, heldur þarf að bæta í þjónustu og koma í veg fyrir að samfélagslegt tjón hljótist af til lengri tíma.