Úthlutun lóðar að Heiðarstekk 7 Selfossi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 33
20. nóvember, 2019
Annað
Svar

Í samræmi við reglur um úthlutun lóða í Sveitarfélaginu Árborg þá ákveður Skipulags- og byggingarnefnd að við útdrátt þennan skuli draga um hverjum skuli úthlutað lóð en þá skal einnig draga um einn aðila til vara um hverja lóð. Komi til þess að sá sem dregin er út og hlýtur lóðaúthlutun í samræmi við umsókn sína greiði ekki tilskilin gjöld á réttum tíma telst úthlutun úr gildi fallinn án tilkynningar. Mun þá þeim aðila sem dregin var til vara verða úthlutað lóðinni.
Ari Már Ólafsson vék af fundi.
Dregið var úr gildum umsóknum.
Útdreginn umsækjandi: Iron ehf
Til vara: SG Húseiningar ehf