Fyrirspurn - afnot af kartöflugeymslunni að Jórutúni 16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 53
14. nóvember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Fyrirspurn frá Kögunarhóli ehf þar sem óskað er eftir upplýsingum og eða viðræðum um breytta nýtingu á Kartöflugeymslunni við Jórutún 16.
Svar

Í gildi er húsaleigusamningur um kartöflugeymsluna milli Svf. Árborgar og félagsins Kartöflugeymslan á Selfossi og engar viðræður hafa farið fram milli samningsaðila um breytingar á því. Erindinu er því hafnað.