Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt endurgreiðslu vsk, vegna fráveituframkvæmda
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 49
10. október, 2019
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá nefndarsviði Alþingis, dags. 26. september, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 (endurgreiðsla virðisaukaskatts), 26. mál.
Svar

Bæjarráð fagnar því að þetta frumvarp er fram komið og leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að það verði að lögum. Fjöldi sveitarfélaga stendur frammi fyrir miklum framkvæmdum í fráveitumálum og mun það verk ganga greiðar verði frumvarpið að lögum.