Skipulags og byggingarnefnd - 24
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 41
18. júlí, 2019
Annað
Svar

15.1. 1902150 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi að Tryggvagötu 15, stækkun líkamsræktarstöðvar. Tillagan hefur verið auglýst, engar athugasemdir hafa borist. Niðurstaða 24. fundar skipulags- og byggingarnefndar Lagt er til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt. Niðurstaða þessa fundar Bæjarráð samþykkir deiliskipulagstillöguna. 15.9. 1905413 - Umsókn um endurnýjun á byggingarleyfi að Eyrarlæk 8 Selfossi. Erindið hefur verið grenndarkynnt, athugasemdir hafa borist. Umsækjandi: Guðni Gestur Pálmason. Niðurstaða 24. fundar skipulags- og byggingarnefndar Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að skipulagsbreytingunni verði hafnað byggt á athugasemdum við grenndarkynningu. Niðurstaða þessa fundar Bæjarráð hafnar skipulagsbreytingunni að tillögu skipulags- og byggingarnefndar. 15.11. 1705113 - Umsókn um leyfi fyrir stækkun fornleifarannsóknar á Vesturbúðarhól á Eyrarbakka Niðurstaða 24. fundar skipulags- og byggingarnefndar Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að framkvæmdarleyfið verði samþykkt. Niðurstaða þessa fundar Bæjarráð samþykkir framkvæmdaleyfi fyrir stækkun fornleifarannsóknar á Vesturbúðarhól á Eyrarbakka.