Tillaga að aðalskipulagsbreytingu Árbakka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 30
16. desember, 2020
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 58. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 16. desember sl., liðir 7. Tillaga að aðalskipulagsbreytingu Árbakka. Skipulagsfulltrúi lagði fram greinargerð með tillögu að svörum sveitarfélagsins Árborgar við framkomnum athugasemdum við tillögur um skipulagsbreytingar að Árbakka á Selfossi.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að aðalskipulagsbreyting yrði samþykkt og athugasemdum svarað skv. greinargerð skipulagsfulltrúa. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að deiliskipulagsbreytingu með skipulagshöfundi.
Svar

Sigurjón V. Guðmundsson, Á-lista tekur til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.