Styrkur vegna Íslandsmeistaratitils
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 36
23. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Handknattleiksdeild Umf. Selfoss náði þeim árangri í gærkvöldi að meistaraflokkur karla urðu íslandsmeistarar í handbolta eftir sannfærandi sigur á liði Hauka.
Svar

Bæjarráð óskar meistaraflokki karla í handbolta og handknattleiksdeild Umf. Selfoss til hamingju með frábæran árangur í Olís deildinni og Íslandsmeistaratitilinn. Þetta er í fyrsta skipti sem deild innan Umf. Selfoss nær slíkum árangri í efstu deild í boltaíþrótt.
Af þessu tilefni samþykkir bæjarráð að afhenda handknattleiksdeild Umf. Selfoss 2 m.kr. styrk til frekari uppbyggingar deildarinnar.