Eftirlit á móttökustað fyrir úrgang í landi Lækjamóta
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 111
15. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Málið var áður tekið fyrir á 110. fundi bæjarráðs þann 8. apríl sl. Þar óskaði bæjarráð eftir vinnuskýrslu, þ.e. sundurliðun á vinnu sérfræðings, vegna uppsetts gjalds, kr. 1.584.000,-, áður en til greiðslu kæmi. Sundurliðunin er hér lögð fyrir.
Svar

Bæjarráð þakkar UST skjót svör en gerir alvarlega athugasemd við greinargerðina, skýringar eru ónógar og erfitt að gera sér glögga grein fyrir þeirri vinnu sem innt var af hendi. Bæjarráð hvetur stofnunina til að vanda betur til verka að þessu leyti þannig að skýrt sé fyrir hvaða vinnu er verið að greiða.