Beiðni um heimild til nýtingar lands á Eyrarbakka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 8
27. september, 2022
Annað
Fyrirspurn
Jóhann Bjarni Loftsson leggur fram ósk til sveitarfélagsins Árborgar, um leyfi til að hafa afnot af svæði undir kartöflugarð, niður undir sjóvarnargarði sem er með staðsetningu rétt sunnan við knattspyrnuvöll (grasvöll, austast á Eyrarbakka) Fjölskylda Jóhanns hefur haft afnot af svæðinu um margra áratuga skeið. Stærð garðsins er um það bil 76m meðfram gamla sjógarðinum, um það bil 37m frá sjógarðinum austan megin, en um það bil 24m frá sjógarðnum vestan megin.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd vísar erindinu til afgreiðslu mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar.