Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 392
Annað
‹ 17
18
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands: Óskað er eftir að fram fari kynning á fundi ráðsins um hvað er á teikniborðinu í deiliskipulagsvinnunni sem er sérstaklega ætlað eldri borgurum. Eru þar á meðal lífsgæðakjarnar fyrir eldri borgara? Eru þar á meðal íbúðir fyrir 60+? Eru þar á meðal þjónustuíbúðir? Eru þar á meðal hjúkrunarheimili? Eru þar á meðal búsetukjarnar eða annars konar búsetuform? Hvað er reiknað með að það sem er í vinnslu núna mæti þörfum margra? Greinargerð fylgir fyrirspurn.