Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 391
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins: Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að fara í heildstæða rýni á umferðaröryggi við leikskóla og grunnskóla í Reykjavík. Við rýnina verði stuðst við fyrirliggjandi gögn um umferðaröryggi, þar á meðal umferðaröryggisáætlanir, fyrirliggjandi forgangsröðun framkvæmda, válista og aðrar greiningar sem unnar hafa verið á vegum borgarinnar, auk ábendinga og kvartana sem borist hafa frá íbúum og skólasamfélaginu. Greinargerð fylgir tillögu. Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga umhverfis- og skipulagsráðs: Umhverfis- og skipulagsráð leggur til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að fara í heildstæða rýni á umferðaröryggi við leikskóla og grunnskóla í Reykjavík. Við rýnina verði stuðst við fyrirliggjandi gögn um umferðaröryggi, þar á meðal umferðaröryggisáætlanir, fyrirliggjandi forgangsröðun framkvæmda, válista og aðrar greiningar sem unnar hafa verið á vegum borgarinnar, auk ábendinga og kvartana sem borist hafa frá íbúum og skólasamfélaginu. Niðurstöður rýninnar ásamt aðgerðalista verði lagðar fyrir umhverfis- og skipulagsráð eigi síðar en 1. mars 2027. Brýnum öryggisúrbótum sem þegar hafa verið skilgreindar verði ekki frestað vegna rýninnar. Breytingartillaga samþykkt. Tillagan er samþykkt svo breytt. Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihlutans fagna því að ráðist verði í heildstæða rýni á umferðaröryggi við leik- og grunnskóla í Reykjavík. Mikilvægt er að byggt verði á fyrirliggjandi gögnum, greiningum og ábendingum skólasamfélagsins þannig að skýr yfirsýn fáist yfir stöðu mála og hægt verði að forgangsraða aðgerðum þar sem þörfin er mest. Meirihlutinn leggur áherslu á að vinnan skili skýrum tillögum að úrbótum og að markmiðið sé að bregðast við þeim stöðum þar sem foreldrar og forráðamenn treysta umferðaraðstæðum ekki nægilega vel til að börn geti ferðast sjálfstætt og á öruggan hátt til og frá skóla.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Öll börn í Reykjavík eiga að geta ferðast örugg til og frá skóla, óháð því í hvaða hverfi þau búa. Fulltrúar Samfylkingarinnar styðja heildstæða rýni á umferðaröryggi við leik- og grunnskóla borgarinnar. Mikil vinna hefur þegar verið unnin á þessu sviði og fyrir liggja greiningar, válistar og ábendingar foreldra og skólasamfélagsins. Mikilvægt er að ný úttekt skili raunverulegum úrbótum en verði ekki enn eitt skjalið í skúffunni. Við leggjum áherslu á að rýnin nái til skólaleiða barna í heild og helstu leiða þeirra til íþrótta og frístunda, en takmarkist ekki við næsta nágrenni skólanna. Sérstaklega þarf að huga að öruggum göngu- og hjólaleiðum, gatnamótum og gönguþverunum, ökuhraða, lýsingu, aðgengi fyrir alla og vetrarþjónustu. Óskað er eftir skýrri tímasetningu, forgangsraðaðri framkvæmdaáætlun og kostnaðarmati. Þar sem hættulegar aðstæður eru þegar þekktar eiga úrbætur ekki að bíða eftir frekari greiningum.