Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 391
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins: Lagt er til að umhverfis- og skipulagssviði, í samstarfi við skóla- og frístundasvið, verði falið að skoða mögulegar útfærslur á sérmerktum skammtímastæðum, sleppistæðum, í nágrenni við leikskólann að Bríetartúni 11. Sviðið leggi í kjölfarið fram tillögu fyrir umhverfis- og skipulagsráð um útfærslu stæðanna, staðsetningu þeirra og viðeigandi merkingar, með það að markmiði að auðvelda foreldrum og forsjáraðilum að koma með og sækja börn í leikskólann með öruggum og greiðum hætti. Greinargerð fylgir tillögu.
Svar

Samþykkt. Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.