Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Opnun efstu hæðar Bergstaða fyrir almenningi sem P1-gjaldsvæði bætir nýtingu þeirra 35 bílastæða sem þar eru og einfaldar rekstur. Við breytinguna geta íbúakortshafar einnig nýtt stæðin á grundvelli íbúakorta sinna. Nýtingarmælingar sýna að efsta hæðin hefur að jafnaði aðeins verið nýtt um 24% yfir daginn og því er verulegt svigrúm til betri nýtingar. Með breytingunni geta fleiri nýtt fyrirliggjandi stæði í miðborginni og dregið er úr viðhaldsþörf og rekstrarvanda vegna aðgangsstýringar á efstu hæðinni. Mikilvægt er að breytingin verði kynnt núverandi áskrifendum með góðum fyrirvara og þeim og fólki á biðlista boðnir aðrir áskriftarkostir í samræmi við tillöguna.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja tillöguna og fagna því að bæta eigi nýtingu bílahússins Bergstaðir. Samkvæmt fyrirliggjandi nýtingartölum er nýting hússins aðeins um 24% þegar mest er og enn minni yfir sólarhringinn. Svipaða vannýtingu má sjá í fleiri bílastæðahúsum borgarinnar. Þetta vekur spurningar um áherslur í bílastæðamálum. Á sama tíma og bílastæðahúsin eru vannýtt eru uppi áform um að endurheimta götustæði, jafnvel á kostnað almenningsrýma sem hafa verið nýtt undir mannlíf og betra borgarumhverfi. Við teljum mikilvægt að nýta betur þau bílastæði sem þegar eru til staðar í bílastæðahúsum borgarinnar áður en ráðist er í að fjölga götustæðum á kostnað almenningsrýma.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Þetta er svo sem ágætis breyting og í takt við þá stefnu sem umhverfis- og skipulagsráð hefur markað um betri stýringar, nýtingu og aðgengi í bílastæðahúsin. Hins vegar er það skoðun fulltrúa Vinstrisins að Reykjavíkurborg ætti að selja Bergstaði og skipuleggja íbúðauppbyggingu á lóðinni. Væri það spennandi þróunarverkefni, betri nýting lóðarinnar og myndi stuðla að fjölgun íbúa í hjarta miðborgarinnar og þar með betri nýting allra innviða.