Lögð fram umsókn BBL 177 ehf., dags. 28. september 2026, um breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis vegna lóðarinnar nr. 27 við Klettagarða. Í breytingunni sem lögð er til felst að bílastæðum verður fjölgað á lóðinni ásamt því að heimilt veður að afmarka allt að 81 rafhleðslustöðvarstæði fyrir hópbifreiðir í tengslum við rekstur á lóðinni, samkvæmt uppdr. Unit ehf., dags. 20. október 2026.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Lagt er til að ráðið samþykki tillöguna til auglýsingar.