Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 387
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 9. júlí 2026 ásamt kæru nr. UUA2607003, dags. 8. júlí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 um að hafna kröfu um niðurrif óleyfismannvirkis að baki Laugavegs 178. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 16. júlí 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 2. september 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 24. júní 2026 að synja beiðni um beitingu þvingunarúrræða vegna hjólageymslu við mörk lóðar Laugavegs 178.