Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 13 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 380
Annað
‹ 52
53
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands: 1. Hversu stór hluti af sumar- og vetrarþjónustu borgarinnar (annars vegar snjóhreinsun/hálkueyðing gatna og stíga, og hins vegar viðhald grænna svæða, grassláttur og umhirða garða) er unninn af starfsmönnum borgarinnar á hverfastöðvum og hversu miklu hefur verið útvistað til einkaaðila eða verktaka? Óskað er eftir útlistun á verkefnum sumar -og vetrarþjónustu borgarinnar og hver fer með framkvæmd verkefnanna. 2. Hvaða verkferlar og gæðakröfur gilda um eftirlit með verkum sem útvistað er til verktaka, og hvernig er brugðist við ef þjónustan stenst ekki væntingar eða samninga (t.d. varðandi viðbragðstíma í snjómokstri)? 3. Liggur fyrir nýlegt mat eða greining á því hvort hagkvæmara og skilvirkara sé að reka þessa þjónustu með eigin vinnuafli og tækjabúnaði eða með útvistun í gegnum opinber útboð?