Aðalstræti 7 – breytingaerindi
Síðast Frestað á fundi fyrir 1 viku síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1082
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. september 2026 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052944, breyta innra skipulagi í veitingastað í fl. II, teg. a fyrir 105 gesti á 1. hæð og í kjallara og innrétta gististað í fl. II á efri hæðum í húsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Svar

Neikvætt er tekið í að innrétta gististað í flokki II á efri hæðum hússins á lóð nr. 7 við Aðalstræti þar sem landnýtingarkvóti fyrir gististarfsemi er fullnýttur innan skipulagssvæðisins.