Frestað. Vísað til athugasemda.
10.Fornhagi 8 - USK26030400
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, bæta aðgengi, koma fyrir lyftu á milli hæða,
skipta um glugga, einangra og klæða að utan með álklæðningu, koma koma fyrir svölum og
flóttastiga á vesturhlið og sorpskýli á lóð leikskólans Hagaborg, mhl.01, á lóð nr. 8 við
Fornhaga.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september, skýrsla Cowi um brunahönnun
dags. 13. mars 2026 og yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum.
11.Funahöfði 19 - USK26100023
Sótt er um leyfi til að bæta brunavarnir í rýmum 0102 og 0201 í skrifstofuhúsi á lóð nr. 19 við
Funahöfða.
12.Furugerði 1 - USK26090269
Sótt er um leyfi til að innrétta fótaaðgerðarstofu í rými 0108 í húsi á lóð nr. 1 við Furugerði.
Erindi fylgir greinagerð hönnuðar.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
13.Geirsgata 7C - USK26080365
Sótt er um leyfi til að breyta starfsmannainngangi og innra skipulagi í mhl. 02, á 1. og 2. hæð
ásamt því að bætt er við opnun yfir í mhl. 01, rými 0202 og innra skipulagi breytt í
veitingahúsi í fl. II, teg. a á lóð nr. 7 B/C við Geirsgötu.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum uppdráttum dags. 12. janúar 2021.
14.Grandagarður 2 - USK25090070
Sótt er um leyfi til þess að endurnýja og færa til fyrra horfs Alliancehúsið, byggingu A, mhl.01,
rífa verslunarhús, mhl.02, og byggja þriggja hæða verslunar- og hótelbyggingu, byggingar B
og C ásamt tengigangi og kjallara/bílageymslu með 61 bílastæði, mhl.02, og innrétta sem
hótel í flokki lV tegund A með 117 herbergjum fyrir alls ? gesti, veitingastað í flokki ll tegund ?
fyrir ? gesti og skrifstofur á 1 hæð í byggingu A á lóð nr. 2 við Grandagarð.
Niðurrif: xx.x ferm., xx.x rúmm
Nýbygging: xx.x ferm., xx.x rúmm.
Nýtingahlutfall lóðar: x.xx
Erindi fylgir umsögn Minjastofnungar dags.19. janúar 2026, hljóðvistarskýrsla Brekke Strand
útg. 1 dags. 9. mars 2026, brunahönnunarskýrsla Örugg útg. V01 dags. 10. febrúar 2026 og
umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. október 2025.
15.Grensásvegur 16A - USK26090404
Sótt er um breytingar innanhúss í mhl. 1, eign 0102 í húsi A á lóð nr. 16 við Grensásveg.
Geymslum fjölgað úr 10 í 59.
16.Grensásvegur 1B - USK25080250
Sótt er um leyfi vegna til að breyta innra skipulagi og innréttahár- og snyrtistofu í rými 0105 í
húsi á lóð nr. 1B við Grensásveg.
Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
17.Grettisgata 20A – breytingaerindi - USK26040120
Sótt er um leyfi til þess breyta erindi USK24060182 þannig burðarsúlur eru settar undir svalir
á 2. hæð í bakhúsi, mhl.02, og að innra skipulagi íbúða er breytt vegna lagnaleiða á 2. og 3.
hæð fjölbýlishúss, mhl.01, á lóð nr. 20 A við Grettisgötu.
Afgreiðist samhlíða erindi USK26040121, sem fjallar um samskonar framkvæmir fyrir
aðliggjandi hús á lóð nr. 20B við Grettisgötu.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 24. febrúar 2026 greinargerð vegna breytinga
dags. 12. apríl 2026 og yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum.
18.Grettisgata 20B – breytingaerindi - USK26040121
Sótt er um leyfi til þess breyta erindi USK24060181 þannig að innra skipulagi íbúða er breytt
lítillega og byggð útbygging með glugga þar sem áður var stigi upp á 1. hæð íbúðarhúss á
lóð nr. 20B við Grettisgötu.
Stækkun mhl. 01: 3,5 ferm.
Mhl. 01 eftir stækkun: 391,2 ferm., 1.273,3 rúmm.
Afgreiðist samhlíða erindi USK26040120, sem fjallar um samskonar framkvæmir fyrir
aðliggjandi hús á lóð nr. 20A við Grettisgötu.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 24. febrúar 2026, greinargerð vegna breytinga
dags. 12. apríl 2026, yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum og umsögn
skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2026.
19.Haukahlíð 14 – breytingaerindi - USK26090123
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24030112 með því að uppfæra byggingarlýsingu og
brunavarnir, uppfæra burðarvirki, lagnastokka og hæðarkóta, bæta við einu bílastæði í
kjallara -1, breyta anddyrum við aðalinnganga og breyta innra skipulagi og útliti sumra íbúða í
fjölbýlishúsum á lóð nr. 14 við Haukahlíð.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
20.Haðaland 26 – breytingaerindi - USK26090315
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN059916 vegna lokaúttektar m.a. að fjarlægja anddyri og
útitröppur á austurhlið Meginlands, aðlaga lóð, gera nýja glugga í neðsta kjallara 2. áfanga
ásamt minni háttar breytingum á innra skipulagi og brunavörnum í Fossvogsskóla á lóð nr.
26 við Haðaland.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
21.Hlíðarfótur 19B - USK26090363
Sótt er um leyfi til að innrétta gististað í flokki X, teg. g með 17 gistieiningum fyrir 76 gesti í
rými 0102 á lóð nr. 8 við Arnarhlíð í íbúðar- og atvinnuhúsi nr. 19 og 19B við Hlíðarfót.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
22.Háteigsvegur 35 – breytingaerindi - USK26090342
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24070072, m.a. með því að breyta innra skipulagi,
fyrirkomulagi á geymslum í mhl. 01, uppfæra lóðarhönnun og liti á klæðningum fjölbýlishúsa
á lóð nr. 35 við Háteigsveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
23.Höfðabakki 9 - USK26040217
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og stækka verslun með því að sameina
notkunareiningar á 1. hæð í austurhluta skrifstofu- og verslunarhúss, mhl. 01, á lóð nr. 9 við
Höfðabakka.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum.
24.Jónsgeisli 91 - USK26070138
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK25080037 þannig að þak yfir geymslusvæði er fellt út,
stoðveggjum og flóttastiga bætt við á vesturhlið húss á lóð nr. 91 við Jónsgeisla.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
25.Kringlan 4-12 - USK26080311
Sótt er um leyfi til að sameina rými 248 og 250 á 2. hæð í mhl. 01, í verslunarhúsi á lóð nr. 4-
12 við Kringluna.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 15. júlí 2016 og 14. nóvember 1985.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð þar sem verið er að gera breytingar á
fjöleignarhúsi. Eignaskiptayfirlýsandi þarf að senda staðfestingu á að byrjað sé að gera
eignaskiptayfirlýsingu á eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Þinglýsa þarf eignaskiptayfirlýsingu fyrir lokaúttekt.
26.Kringlan 4-12 - USK26080307
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24090268 vegna lokaúttektar með því að hætta við að
byggja geymsluloft og fjarlægja stiga og breyta byggingarlýsingu í verslun og hársnyrtistofu í
Kringlunni á lóð nr. 4-12 við Kringluna.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
27.Lambhagavegur 14 – breytingaerindi - USK26100063
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK25030119 og koma fyrir móttökuhúsi við Sorpu á lóð
nr. 14 við Lambhagaveg.
Stærð 4,0fermm, 10,4rúmm.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
28.Langirimi 21-23 – breytingaerindi - USK26090406
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta íbúðir í vinnustofum á 2. hæð í
atvinnuhúsi á lóð nr. 21-23 við Langarima.
29.Laugavegur 144 - USK25120243
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum þar sem gerður hefur verið sólpallur á 1. hæð
og léttbyggðar svalir á suðurhlið 2.- 4. hæðar íbúðarhúss á lóð nr. 144 við Laugaveg.
Erindi fylgir húsaskoðun byggingarfulltrúa dags. 13. október 2026.
30.Laugavegur 51 - USK26100018
Sótt er um leyfi til að setja svalir á suðurhlið annarrar og þriðju hæðar íbúðar- og atvinnuhúss
á lóð nr. 51 við Laugaveg.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
31.Laugavegur 60A - USK26080415
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta verslun á 1. hæð og íbúð á 2. og 3.
hæð húss á lóð nr. 60A við Laugaveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
32.Lokastígur 4 - USK26100137
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í breytingum á innra skipulagi og
útliti á suðurhlið fjölbýlishúss á lóð nr. 4 við Lokastíg.
Erindi fylgir afrit af fundargerð húsfélags dags. 1. febrúar 2019.
33.Lágaleiti 3 - USK26090467
Sótt er um leyfi til að reisa sólskála á þaksvölum íbúða 0401 og 0403 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 3
við Lágaleiti.
Erindi fylgir fundargerð húsfélags dags. 8. september 2026 og yfirlit breytinga.
34.Maríubaugur 3 – breytingaerindi - USK26090497
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK26070110 með því að hliðra húsi og breyta innra
skipulagi í millibyggingu í mhl. 02 við leikskóla á lóð nr. 3 við Maríubaug
35.Naustin 1 - USK26100022
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum í veitingastað í fl. III, teg. b fyrir 350 gesti í
verslunar - og iðnaðarhúsi á lóð nr. 1 við Naustin.
36.Njarðargata 43 - USK26100062
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í því að bætt hefur verið við svölum
á 2. og 3. hæð ásamt bættum brunavörnum í gistihúsi í flokki II, tegund C á lóð nr. 43 við
Njarðargötu.
Erindi fylgir brunaskýrsla dags. 10. júní 2026.
37.Norðlingabraut 14 - USK26090121
Sótt er um leyfi til að setja vöruhurð á vesturgafl iðnaðarhúss á lóð nr. 14 við Norðlingabraut.
38.Nóatún 17 - USK26060034
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0101 í verslunarhúsi á lóð nr. 17 við Nóatún
Erindi fylgir yfirlit breytinga
39.Ólafsgeisli 29 - USK26090468
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN021801 vegna lokaúttektar í einbýlishúsi á lóð nr. 29 við
Ólafsgeisla.
40.Safamýri 41 - USK26040440
Sótt er um leyfi til að rífa sambyggða bílskúra, mhl. 02 og 03 og byggja nýja stærri á sama
stað á lóð nr. 41 við Safamýri.
Niðurrif mhl. 02 og mhl. 03: 52,6 ferm.
Nýr mhl. 02: 74,7 ferm., 365,8 rúmm.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi
vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum
sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð þar sem verið er að gera breytingar á
fjöleignarhúsi. Eignaskiptayfirlýsandi þarf að senda staðfestingu á að byrjað sé að gera
eignaskiptayfirlýsingu á eignaskiptayfirlysing@reykjavik.is fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Þinglýsa þarf eignaskiptayfirlýsingu fyrir lokaúttekt.
41.Seljavegur 1A – breytingaerindi - USK26100173
Sótt er um leyfi til að beyta erindi USK26020117 með því að bæta við útihurð á íbúðarhús á
lóð nr. 1a við Seljaveg.
42.Sifjarbrunnur 32 - USK26090294
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN058884 með því að breyta utanhússklæðningu, setja
stoðveggi á lóðarmörkum, fjarlægja hurð innandyra og bæta brunavarnir í einbýlishúsi á lóð
nr. 32 við Sifjarbrunn.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
43.Skeifan 11C - USK26090470
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 2.hæð í verslunar og skrifstofuhúsi á lóð nr. 11c
við Skeifuna.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktu aðaluppdráttum dags: 25. janúar 2011
44.Stangarhylur 3 – breytingaerindi - USK26100096
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24020162 vegna athugasemda við lokaúttekt í húsi á
lóð nr. 3 við Stangarhyl.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
45.Suðurlandsbraut 30 – breytingaerindi - USK26050120
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK25060199 með því að breyta innra skipulagi og
innrétta fótaaðgerða- og nuddstofu í rými 0102 í skrifstofuhúsi á lóð nr. 30 við
Suðurlandsbraut.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
46.Suðurlandsbraut 6 – breytingaerindi - USK26090214
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK25120194 með því að taka út kæli og leiðrétta
upplýsingar á teikningu.húss á lóð nr. 6 við Suðurlandsbraut.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 24. mars 2026.
Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.
47.Tryggvagata 8 - USK26090313
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í rými 0101, veitingastað í fl. II, tegund A í
verslunar- og íbúðarhúsi á lóð nr. 8 við Tryggvagötu.
48.Tunguháls 6 – breytingaerindi - USK26070278
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24080135 með því að breyta innra skipulagi hæða,
ásamt tilfærslu á hliði og hjólaskýli innan lóðar, færa olítank, sandskilju og samrunaskilju
neðanjarðar og koma fyrir eldneytistanki og eldneytisdælu innan lóðar nr. 6 við Tunguháls.
Erindi fylgir yfirlit breytinga á samþykktum aðaluppdráttum dags. 27.maí 2026.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2026.
49.Urðarbrunnur 62 - USK25080297
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN057859 vegna lokaúttektar þannig að útitröppur verða á
norðurhlið í stað suðurhliðar, húsið verður alklætt og innra skipulag á neðri hæð er breytt í
einbýlishúsi á lóð nr. 62 við Urðarbrunn.
Erindi fylgir samþykki lóðarhafa Urðarbrunns 60 og 64 áritað á uppdrátt, ódagsett og lögð er
fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2022.
stofnerindi.
50.Úlfarsfell II – breytingaerindi - USK26100227
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK23030071 þannig að fyrirliggjandi byggingar verða
rifnar, kjallari dýpkaður, húsin endurbyggð í breyttri mynd og byggt nýtt anddyri á vesturhlið
íbúðarhúss, hlöðu og fjóss á lóð með landnúmer L208499, staðfang Úlfarsfell II.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og lögð er fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 31. maí
2023.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
51.Vallarstræti 4 – breytingaerindi - USK26060366
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USKxxxx, innrétta veitingastað í fl. II, teg. a fyrir 80 gesti á
1. hæð og í kjallara og innrétta gististað í fl. II á efri hæðum í húsi á lóð nr. 7 við Vallarstræti.
Erindi fylgir yfirlit breytinga.
október 2026
52.Vatnagarðar 22 – breytingaerindi - USK26100114
Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK25120267 þannig að byggingarlýsing, brunamerkingar
og texti um brunavarnir er uppfærður í atvinnuhúsi á lóð nr. 22 við Vatnagarða.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og greinargerð um brunahönnun dags. 24. september 2026.
Fundi slitið kl. 12:30
Brynjar Þór Jónasson
Sigrún Reynisdóttir
Dagný Geirdal
Böðvar Páll Jónsson
Guðbjörg Sigríður Snorradóttir.