Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um málsmeðferðartillögu Samfylkingarinnar og Vinstrisins:
Meirihlutinn telur ekki ástæðu til að fresta tillögunni á nýjan leik enda er gagnaöflun mikilvægur hluti þess undirbúnings sem hún kveður á um. Við undirbúninginn verði metin samanlögð áhrif fyrirhugaðra aðgerða á afkastagetu og umferðaröryggi og unnið kostnaðarmat og framkvæmdaáætlun. Niðurstöðurnar verði lagðar fyrir ráðið og nýttar til að móta endanlega útfærslu úrbótanna.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um málsmeðferðartillögu Samfylkingarinnar og Vinstrisins:
Tillaga um að ráðast aftur í breytingar á gatnamótum Höfðabakka/Bæjarhálsi er ekki nægilega undirbúin til endanlegrar afgreiðslu. Fyrir liggur fagleg greining COWI sem mælir með sviðsmynd 2 en ekki endurgerð framhjáhlaupsins. Hins vegar vantar heildarmat á samspili aðgerðanna, kostnaðarmat og skýra útfærslu á mögulegum undirgöngum og tengingu þeirra við stígakerfið. Það er því eðlilegt að fresta málinu þar til nauðsynleg gögn liggja fyrir og ráðið getur tekið upplýsta ákvörðun. Það er dapurlegt að Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Framsókn og Miðflokkur vilji ekki vanda til verka og taka endanlega ákvörðun þegar öll gögn málsins liggja fyrir og felli frestunartillögu Samfylkingar og Vinstrisins.
Upphafleg tillaga er samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn 2 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn vill hefja undirbúning úrbóta samkvæmt sviðsmynd 2 í greiningu COWI og endurgerðar hægribeygjuframhjáhlaups frá Bæjarhálsi til norðurs inn á Höfðabakka. Stefnt er að framkvæmd beggja aðgerða, að því gefnu að kostnaður rúmist innan fjárheimilda. Við undirbúninginn verði samanlögð áhrif þeirra á afkastagetu og umferðaröryggi metin og niðurstöðurnar nýttar til að móta endanlega útfærslu. Við endurgerð framhjáhlaupsins verði gripið til aðgerða sem miða að aukinni árvekni ökumanna, minni beygjuhraða og bættu öryggi gangandi og hjólandi. Gert verði ráð fyrir upphækkaðri gönguþverun, í samræmi við ábendingu COWI um útfærslu við endurgerð. Jafnframt verði metnar breytingar á lögun beygjunnar og bættar sjónlínur. Sérstaklega verði leitað leiða til að draga úr hættu á aftanákeyrslum. Íbúar í Ártúnsholti hafa bent á að umferð inn í hverfið hafi aukist verulega eftir breytingarnar á gatnamótunum árið 2025. Kanna þarf hvort tafir við gatnamótin hafi leitt til aukins gegnumaksturs um hverfið og hvernig megi draga úr honum. Samhliða verði kannaður fýsileiki undirganga undir Höfðabakka norðan gatnamótanna til að bæta göngu- og hjólatengingar og aðgengi fyrir alla. Kostnaðarmat og framkvæmdaáætlun verði lögð fyrir ráðið. Markmiðið er að tryggja örugga og greiða umferð um Höfðabakka og draga úr töfum og samfélagslegum kostnaði þeirra án þess að slaka á öryggiskröfum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Við áframhaldandi endurbætur á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls er mikilvægt að næstu skref byggist á fyrirliggjandi faglegum greiningum, þar sem umferðarflæði og öryggi allra vegfarenda eru höfð að leiðarljósi. Samkvæmt óháðri greiningu verkfræðistofunnar COWI er sviðsmynd 2 sú lausn sem best sameinar aukna afkastagetu gatnamótanna og bætt umferðaröryggi, bæði fyrir óvarða vegfarendur og akandi. Í greiningunni kemur jafnframt fram að endurgerð hægribeygju-framhjáhlaups frá Bæjarhálsi myndi skila takmörkuðum ávinningi fyrir umferðarflæði en draga úr umferðaröryggi. Framlögð tillaga samræmist því ekki þeim faglegu ráðleggingum sem sérfræðingar borgarinnar og ráðgjafar hennar hafa lagt til grundvallar. Fulltrúar Samfylkingarinnar eru ávallt opnir fyrir því að allir raunhæfir valkostir séu skoðaðir og styðja úrbætur í takt við sviðsmynd 2. Endurgerð framhjáhlaupsins felur hins vegar í sér kostnaðarsamar breytingar sem greiningar sýna að skila litlum ávinningi fyrir umferðarflæði og lakara umferðaröryggi. Hér er því vikið frá niðurstöðum faglegra greininga án þess að sterk rök eða ný gögn liggi til grundvallar. Það vekur upp alvarlegar spurningar um breytta nálgun við ákvarðanatöku í skipulags- og samgöngumálum borgarinnar. Meta þarf kostnað við endurgerð á beygjuvasa frá Bæjarhálsi og leggja fram kostnaðarmat á mögulegum undirgöngum undir Höfðabakka og hvernig slík tenging muni tengjast stígakerfi borgarinnar áður en lengra er haldið.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Með því að setja aftur hægri beygju á framhjáhlaup er verið að fara gegn ráðleggingum umferðarsérfræðinga COWI, auka kostnað skattgreiðenda stórkostlega og hunsa markmið aðalskipulags og allt sem er skynsamlegt til að tryggja öryggi gangandi fólks, hjólreiðamanna og bílfarþega. Það þarf þrautseigju að búa til borg fjölbreyttra og virkra ferðamáta og gefa fólki raunverulegt frelsi frekar en að festa það í bílunum sínum með auknum umferðartöfum. Allir umferðarsérfræðingar mæla gegn því að nota hægri beygju framhjáhlaup og ætti það að vera síðasti valkostur í hönnun hægribeygja. Þegar götur eru settar í megrun, þeim breytt fyrir fjölbreytta ferðamáta eða fjarlægðar þá hverfur hluti af fyrri umferðarþunga. Hann færist ekki í aðrar götur heldur hafa rannsóknir sýnt að fólk velur að ferðast öðruvísi sé valmöguleikinn fyrir hendi. Það á ekki að breyta þessum gatnamótum til baka heldur á að setja fjármagnið sem meirihlutinn ætlar að nota í þessar breytingar í almenningssamgöngur, öryggi gangandi vegfarenda og hjólastíga. Að setja aftur beygjuvasa kostar u.þ.b. 100-200 milljónir og ætli þessi meirihluti að koma fyrir undirgöngum undir Höfðabakka þá má vænta milljarðaframkvæmd. Er það góð meðferð skattfjár og fyrir hvað og hverja?