Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. júní 2026 ásamt kæru nr. UUA2605013, dags. 23. maí 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingaryfirvalda um að kæranda beri að fjarlægja grindverk á verönd hans að Lindargötu 12 í Reykjavík. Einnig er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 16. júní 2026. Úrskurðarorð: Hafnað er þeirri kröfu kæranda að fresta réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 27. apríl 2026 um að fjarlægja skuli viðbyggingu á baklóð 1. hæðar íbúða 0101 og 0102 að Lindargötu 12.