Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 375
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla. Í breytingunni sem lögð er til felst að skipulagsmörk eru færð og samræmd nýju deiliskipulagi Suðurlandsbrautar. Jafnframt er framsetning bílastæða samræmd þannig að nákvæm útfærsla þeirra verði ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin á síðari stigum. Að öðru leyti haldast gildandi skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdr. VSB verkfræðistofu, dags. 25. febrúar 2026.
Svar

Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingar á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins. Ljóst er að niðurstaðan verður færri bílastæði, án þess að það sé sett fram með skýrum hætti. Sú þróun sé ekki í samræmi við þarfir atvinnulífs á svæðinu. Fyrirséð er að veruleg fækkun bílastæða muni hafa neikvæð áhrif á aðgengi, rekstrarskilyrði fyrirtækja og daglegt líf fólks. Nauðsynlegt er að slík áhrif séu metin með opnum og gagnsæjum hætti áður en breytingar eru samþykktar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn telur alvarlegt að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda rekstraraðila við Suðurlandsbraut. Suðurlandsbraut gegnir því lykilhlutverki í dag að dreifa umferð inn í Laugardal og tengja umferð sem er á leið í og úr miðbænum og mun þessi breyting koma til með valda aukinni töf á umferð sem mun hafa ruðningsáhrif á samgöngukerfið í heild með neikvæðri þróun. Framsókn hefur bent á leiðir til að útfæra deiliskipulagstillöguna með hliðsjón af ólíkum hagsmunum. Óþarfi er að ráðast í þessar framkvæmdir í svo mikilli andstöðu við borgarbúa. Framkvæmdirnar munu hafa gríðarleg áhrif á fyrirtæki, þúsundir starfsmanna og viðskiptavina sem þangað fara á hverjum degi. Framsókn styður forgangsakreinar fyrir almenningssamgöngur en telur að útfæra verði Borgarlínuframkvæmdir í meiri sátt.