Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1053
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 18-28 og Ármúla 15-27. Í breytingunni sem lögð er til felst að skipulagsmörk eru færð og samræmd nýju deiliskipulagi Suðurlandsbrautar. Jafnframt er framsetning bílastæða samræmd þannig að nákvæm útfærsla þeirra verði ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin á síðari stigum. Að öðru leyti haldast gildandi skilmálar óbreyttir, samkvæmt uppdr. VSB verkfræðistofu, dags. 25. febrúar 2026.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.

Deiliskipulag
Suðurlandsbraut, Hallarmúli, Ármúla og Vegmúli
Samþykkt 30.04.2002 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag