Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1056
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að nýju deiliskipulagi fyrir hluta Bústaðavegar frá skipulagsmörkum Hverfisskipulags Hlíðarhverfis, Hlíðar 3.2, til vesturs að skipulagsmörkum Kringlubæjar II áfanga til norðurs og að afmörkun deiliskipulags Efstaleitis, RÚV reits, til austurs og til suðurs eru skipulagsmörk svæðisins afmörkuð sunnan við núverandi stígakerfi.  Í tillögunni sem lögð er til felst að komið er fyrir nýrri biðstöð strætó sunnan megin við Bústaðaveg við Efstaleiti ásamt því að núverandi biðstöð norðan megin við Bústaðaveg verður hluti af þessu deiliskipulagi. Aðreinar sunnan megin við Bústaðaveg frá Kringlumýrarbraut eru framlengdar inn á Bústaðaveg fram að umferðarljósum við Efstaleiti og gerð er ný gönguþverun yfir Bústaðaveg við núverandi umferðarljós hjá Efstaleiti, samkvæmt uppdr. COWI, dags. 8. apríl 2026.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.