Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 380
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24. febrúar 2026 ásamt kæru nr. UUA2602024, dags. 22. febrúar 2026, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúi um útgáfu á byggingarleyfi, samþykktu 2. desember 2025, einnig hverfisskipulag Árbæjar, auglýst 31. október 2019. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 30. mars 2026. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 4. maí 2026. Úrskurðarorð: Vísað er frá úrskurðarnefndinni kröfu um ógildingu hverfisskipulags fyrir Ártúnsholt, Árbæ og Selás. Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 2. desember 2025 um að samþykkja umsókn um byggingarleyfi fyrir tveimur færanlegum kennslustofum auk tengibyggingar á lóð nr. 17 við Hlaðbæ.