Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á skilmálum deiliskipulags Hólmsheiðar, athafnasvæðis. Í breytingunni sem lögð er til felst minnkun á byggingarmagni þriggja lóða; Lóð C, D og E, samkvæmt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 31. mars 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Engar athugasemdir bárust.