Kringlan 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1260
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja bílakjallara á tveimur hæðum, K1 og K2, með 154 stæðum og kemur til með að þjóna átta 4-9 hæða fjölbýlishúsum með 151 íbúð á reit A, á lóð nr. 1 við Kringluna. Erindi fylgir innmæling á lóð dags. 1. desember 2025, greinargerð um brunavarnir frá Örugg dags. 27. febrúar 2026, greinargerðir hönnuða um aðgengi, einangrun og öryggismál ódagsettar, greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða dags. 17. febrúar 2026 , greinargerð hönnuða um aðkomu neyðar- og sorpbíla dags. 8. júní 2026 og minnisblað umsækjanda dags. 5. júní 2026.
Svar

Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Sérstakt samráð skal haft við byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi,
í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum
á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal
vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar
þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við
byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.

103 Reykjavík
Landnúmer: 107300 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013328
Deiliskipulag
Deiliskipulag Kringlunnar
Samþykkt 13.05.1986 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag
Greinargerð
Greinargerð forsíða