Sótt er um leyfi til að breyta erindi USK24030337 með síðari breytingu USK24070193
þannig að hótelherbergjum er fækkað í 22 með því að sameina tvö herbergi í ketilshúsi,
stigapallur að tveimur herbergjum á 2. hæð er stækkaður og inngöngum breytt, jafnframt
er erindislýsing og texti um brunavarnir uppfærður fyrir gistiheimili í flokki 2, teg b með alls
22 hótelíbúðum fyrir alls 72 gesti og 8 starfsmenn í húsi Mjólkursamsölunnar, mhl.01 á lóð
nr. 54 við Snorrabraut.
Erindi fylgir yfirlit breytinga samsett af uppfærðum aðaluppdráttum og aðaluppdráttum
samþykktum 9. júlí 2024.
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Afgreiðist með sömu stimplum og stofnerindi.