Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049912 vegna lokaúttektar þannig að breytingar á
innra skipulagi hafa verið gerðar á skrifstofum á 3. 4. 5. og 6. hæð, rými -201 skipt í
tvennt, rými 0002 skipt upp og innréttað starfsmannarými og þvottahús, rými 0104
innréttað sem vinnu- og skrifstofur ásamt því að skráning og brunavarnir hafa verið
uppfærðar í Katrínartúni 4, skrifstofuhúsi sem er mhl. 06 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Erindi fylgir yfirlit breytinga og brunahönnun frá Örugg útgáfa V3, síðast breytt 17. apríl
2026.