Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 375
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 18. mars 2026 þar sem óskað er eftir að umhverfis- og skipulagsráð samþykki breytingartillögur um reglur um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík. Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi breytingar á reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík og feli umhverfis- og skipulagssviði að útfæra þær nánar. Drög að uppfærðum reglum verði lögð fyrir umhverfis- og skipulagsráð til afgreiðslu áður en þær eru lagðar fyrir borgarráð til endanlegrar meðferðar. 1. Hámarksfjöldi bílastæða verði afnuminn. Ekki verði lengur sett efri mörk á fjölda bílastæða við uppbyggingu. 2. Lágmarksviðmið verði einföld og skýr: a. Miða skal við að almennt sé gert ráð fyrir að lágmarki einu bílastæði á hverja íbúð. b. Fyrir íbúðir með þrjú herbergi eða fleiri skal almennt miða við að lágmarki 1,5 bílastæði á íbúð. 3. Svæðaskipting verði felld niður. Ekki verði lengur gerður greinarmunur á svæði I og II við ákvörðun bílastæðafjölda. 4. Sveigjanleiki verði aukinn: Byggingaraðilum verði heimilt, á eigin ábyrgð og með rökstuðningi, að víkja frá framangreindum viðmiðum um fjölda bílastæða ef þeir telja forsendur til. Greinargerð fylgir breytingartillögu. Breytingartillaga felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins. Upphafleg tillaga afgreidd.
Svar

Samþykkt.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins harmar að breytingartillaga Sjálfstæðisflokksins um einföldun og skýrari viðmið í reglum um fjölda bílastæða hafi verið felld. Tillagan miðaði að því að auka gagnsæi, draga úr flækjustigi og færa ákvarðanatöku nær raunverulegum þörfum íbúa og uppbyggingar. Núgildandi kerfi byggir á flóknum viðmiðum, svæðaskiptingu og takmörkunum sem hafa í framkvæmd aukið óvissu, tafir og kostnað við uppbyggingu. Með því að hafna tillögunni er áfram haldið í fyrirkomulag sem hefur ekki reynst nægilega skilvirkt. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur mikilvægt að reglur um bílastæði taki mið af raunverulegum þörfum, ekki síst fjölskyldna í stærri íbúðum, og að ákvarðanir um slíka grunnþætti í skipulagi séu settar fram með skýrum og gagnsæjum hætti. Þrátt fyrir það studdi fulltrúinn tillögu sviðsins þar sem hún er skref í rétta átt. Mikilvægt er að halda áfram að einfalda regluverk og bæta fyrirsjáanleika í þágu íbúa og uppbyggingar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn styður að sjálfsögðu tillögu sem gengur út á það að leiðrétta þær ranghugmyndir sem hafa verið við lýði í bílastæðastefnu borgarinnar. Þessi tillaga hefði mátt ganga lengra og tryggja eitt bílastæði per íbúð sem eru sjálfsögð réttindi íbúðaeigenda. Þessi breyting á stefnu meirihlutans ber vott um kosningaskjálfta, en batnandi fólki er besta að lifa.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Viðreisnar:
Ánægjulegt er að sjá breytingartillögu um bílastæðareglur. Að horft sé til gestastæða er stórbót sem og aukning á viðmiðum. Er það von fulltrúa Viðreisnar að rýmkunin komi til með að veita betra aðgengi að nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu.