Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 vikum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 368
Annað
‹ 22
23
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins: 1. Hvernig var staðið að hálkuvörnum Reykjavíkurborgar dagana fyrir og á sjálfan 20. janúar [2026], m.a. hvað varðar veðurviðvaranir, vöktun aðstæðna og framkvæmd hálkuvarna? 2. Telur borgin að brugðist hafi verið nægilega tímanlega og með fullnægjandi hætti miðað við aðstæður? Hvenær hófust hálkuvarnir um morguninn þann 20. jan.? 3. Hafa farið fram innri úttektir eða greining á því hvort og þá hvað hafi farið úrskeiðis í hálkuvörnum þennan dag? 4. Ef veikleikar komu í ljós, hvaða lærdóm hyggst borgin draga af atburðinum og hvaða aðgerðir verða ráðist í til að draga úr líkum á sambærilegum atvikum í framtíðinni? 5. Var umhverfis- og skipulagssvið í sambandi við Veðurstofu Íslands dagana fyrir 20. jan. þar sem upplýsinga aflað um veðurfar 20. jan.?