Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 374
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um snjallgangbrautir við grunnskóla, sbr. 20. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 29. janúar 2026. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 11. mars 2026. Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.