Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Óskað er eftir greinargerð um ástand Höfða (Héðinshöfða) við Borgartún með lista yfir þau atriði, sem þurfa viðgerðar eða endurnýjunar við. Meðal annars komi fram upplýsingar um rakaskemmdir í húsinu, hvort drenlögn sé fyrir hendi og hvernig æskilegast sé að takast á við þetta vandamál. Einnig hvort þörf sé á að skipta um glugga og hvort unnt sé að setja tvöfalt gler í þá. Þá komi fram upplýsingar um hvort og að hve miklu leyti asbest sé í veggklæðningu og hvort aðkallandi sé að fjarlægja það. Jafnframt verði fjallað um stöðu aðgengismála og brunavarna í húsinu.