Síðast Samþykkt á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 384
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 12. ágúst 2026 um að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að hámarkshraði á Rafstöðvarvegi, sunnan við rampa á Vesturlandsvegi, verði 30 km/klst. Ofangreind ráðstöfun verði merkt með viðeigandi umferðarmerkjum og yfirborðsmerkingu þar sem það á við, í samræmi við reglugerð 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra.
Svar

Samþykkt með vísan til c liðar 1. gr. í viðauka 1.1 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar, um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs og í samræmi við 1. mgr. 84. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar þeirri breytingu að hámarkshraði á Rafstöðvarvegi, sunnan við rampa á Vesturlandsvegi, verði lækkaður úr 50 km/klst. í 30 km/klst. Á þessum kafla er hvorki gangstétt né stígur samsíða akbrautinni og þurfa gangandi og hjólandi vegfarendur því að fara um akbrautina sjálfa. Breytingin er því mikilvægt skref til að auka öryggi allra vegfarenda og tryggja að leyfilegur hámarkshraði taki mið af aðstæðum á hverjum stað.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna tillögunni. Á svæðum þar sem gangandi og hjólandi vegfarendur þurfa að deila akbraut með vélknúnum ökutækjum er lækkun hámarkshraða í 30 km/klst. lykilskref til að tryggja umferðaröryggi og efla vistsamlegar samgöngur. Lækkun umferðarhraða hefur margþætt áhrif; hún eykur öryggi vegfarenda en dregur ekki síður úr hljóðmengun og svifryki á þessu mikilvæga útivistarsvæði.