Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, innrétta bílageymslu í rými 0101 og
starfsmannarými í hliðarbyggingu, hækka innkeyrsludyr um 60 cm. ásamt því að færa
tæknirými í kjallara inn á teikningar og uppfæra byggingarlýsingu í atvinnuhúsi á lóð nr. 10
við Bæjarflöt.
Erindi fylgir yfirlit breytinga, erindislýsing dags. 16. febrúar 2026 og brunavarnarlýsing frá
Lotu dags. 30. september 2025.