Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 293
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í desember 2025, vegna breytingar á deiliskipulagi sem nær til lóðanna Suðurlandsbraut 2, Hallarmúla 2 og Ármúla 3 og afmarkast af Suðurlandsbraut til norðurs, Hallarmúla til norðausturs, Ármúla til suðausturs og lóðanna Lágmúla 5A, Lágmúla 5 og Ármúla 1A suðvesturs. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir uppbyggingu blandaðrar byggðar, með verslun og þjónustu á jarðhæðum og íbúðum á efri hæðum, ásamt bílakjallara, auk útidvalarsvæða, göngu- og hjólastíga fyrir íbúa og almenning. Tillagan var í kynningu frá 5. mars 2026 til og með 7. apríl 2026. Athugasemdir og umsagnir bárust. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma kynntar.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihlutans taka jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir um uppbyggingu blandaðrar byggðar við Ármúla, Hallarmúla og Suðurlandsbraut. Hér gefst tækifæri til að nýta betur land sem í dag fer að stórum hluta undir yfirborðsbílastæði, skapa rými fyrir nýjar íbúðir á þessum frábæra stað, verslun og þjónustu og bæta borgarumhverfið með grænum svæðum og auknum gæðum almenningsrýma. Hafa þarf í huga einkenni svæðisins í Múlunum þannig að einkenni núverandi bygginga fái að njóta sín áfram á svæðinu. Meirihlutinn leggur jafnframt ríka áherslu á að fyrirhuguð uppbygging taki mið af raunverulegri bílastæðaþörf núverandi atvinnustarfsemi og framtíðaríbúa. Í skipulagslýsingunni er gert ráð fyrir að heildarfjöldi bílastæða haldist óbreyttur og að sameiginlegur bílakjallari skapi möguleika á betri samnýtingu þeirra. Mikilvægt er að þær forsendur verði skýrt útfærðar og studdar gögnum í áframhaldandi skipulagsvinnu, þannig að tryggt verði gott aðgengi að fyrirtækjum og þjónustu á svæðinu. Áður en deiliskipulagstillaga verður lögð fram til afgreiðslu þarf að liggja fyrir greinargott mat á bílastæðaþörf, samnýtingu stæða og áhrifum uppbyggingarinnar á samgöngur og starfsemi á svæðinu. Einnig þarf að huga að öruggum og greiðum leiðum fyrir gangandi vegfarendur á svæðinu. Með þessu er lögð áhersla á að ný uppbygging og góðar samgöngutengingar fari saman við raunhæfar lausnir í bílastæðamálum og að skipulagsferlið sé gagnsætt og fyrirsjáanlegt fyrir íbúa, fyrirtæki og uppbyggingaraðila.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna áformum um uppbyggingu blandaðrar byggðar við Suðurlandsbraut, Hallarmúla og Ármúla. Hér er tækifæri til að nýta vannýtt land í grónu borgarhverfi, fjölga íbúðum og skapa fjölbreytt og mannvænt borgarumhverfi í góðum tengslum við Borgarlínu. Við teljum mikilvægt að ábendingar umsagnaraðila verði teknar alvarlega við áframhaldandi skipulagsvinnu, sérstaklega hvað varðar loftgæði, hljóðvist, græn svæði og góð dvalarsvæði fyrir íbúa. Einnig þarf að skoða fjölda bílastæða í ljósi nálægðar við öflugar almenningssamgöngur. Við viljum jafnframt leggja áherslu á fjölbreytt húsnæðisform og að skoðað verði hvort hluti íbúðanna geti orðið á vegum óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga. Þetta verkefni er gott dæmi um hvernig Reykjavík getur vaxið inn á við, nýtt fyrirliggjandi innviði betur og skapað ný heimili án þess að brjóta undir byggð nýtt land.