Síðast Samþykkt að grenndarkynna á fundi fyrir 3 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1061
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Eikar fasteignafélags ehf., dags. 16. desember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfiriseyjar) vegna lóðarinnar nr. 2-8 við Fiskislóð. Í breytingunni sem lögð er til felst að breyta lögun byggingarreits þannig að rými skapist fyrir viðbyggingar á tveimur stöðum, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta, dags. 9. desember 2025.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Grandagarði 1, 1A, 1B, 3, 5, 7, 9, 11 og 13 og Fiskislóð 10.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. gr. 7.6 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1376/2025.

101 Reykjavík
Landnúmer: 180624 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001466