Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 371
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn Þorkels Magnússonar, dags. 12. desember 2025, um breytingu á deiliskipulagi Fossaleynismýrar vegna lóðarinnar nr. 17 við Fossaleyni. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðarinnar til norðurs um 2.414 m2 og verður lóð eftir breytingu 6.193 m2. Núverandi bráðabirgðahúsnæði á lóð verður fjarlægt en grunnflötur aðalbyggingar stækkar lítillega og byggð lagna- og tæknihæð ofan á hluta hússins. Byggingarreitir fyrir hjólageymslu og sorpskýli eru skilgreindir á uppdrætti. Nýtingarhlutfall eftir breytingar verður 0,29. Innkeyrslum á lóðina verður fjölgað úr einni í tvær en bílastæðum fækkar um tvö á lóðinni. Heimilt verður að reisa 3 m. háa girðingu á lóðamörkum, samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta, dags. 12. desember 2025. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. janúar 2026 til og með 4. febrúar 2026. Athugasemdir og ábendingar bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. febrúar 2026.
Svar

Samþykkt með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. febrúar 2026, með vísan til a. liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs.

112 Reykjavík
Landnúmer: 175711 → skrá.is
Hnitnúmer: 10054950
Deiliskipulag
DSK stgr. 2.4, Fossaleynismýri
Samþykkt 07.02.1995 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag