Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 364
Frestað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að ráðist verði í peruskipti/viðgerð ljósastaura á göngustígum í Elliðaárdal, Víðidal, Árbæ, Ártúnsholti og Seláshverfi. Á Árbæjarstíflu logar ljós á einum lampa en fjórtán eru óvirkir. Að auki eru flestir ljósastaurar óvirkir á kafla á syðri bakkanum, frá stíflunni vestur að Höfðabakkabrú. Ljósastaurar eru óvirkir á kafla á göngustíg fyrir neðan Laxakvísl í Ártúnsholti. Þá eru götulampar óvirkir á kaflanum milli Höfðabakkabrúar og Bæjarháls, n.t.t. við biðstöðvar strætisvagna sem þar eru. Fjöldi ljósastaura er óvirkur á gönguleið austan Vatnsveitubrúarinnar, fyrir neðan Klapparás, Sauðás og Vesturás. Um tuttugu ljósastaurar eru óvirkir við brýrnar yfir Dimmu uppi undir Breiðholtsbraut og á gönguleiðum frá þeim til vesturs.
Svar

Frestað.