Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta svefn- og hvíldarrými
flugumferðastjóra í norðausturhorni 1. hæðar og sk. "fjarturn" í norðurhlið 2. hæðar
flugstjórnarmiðstöðvar við Nauthólsveg 66 sem er mhl. 36 á lóð með landnúmer 106748.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 3. desember 2025, hljóðvistargreinargerð I frá EFLU
dags. 4. nóvember 2025, tölvupóstur varðandi algilda hönnun dags. 30. janúar 2025 og
brunahönnun frá EFLU dags. 2. desember 2025.