Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 363
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um göngustíg í Gufunesi, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 26. nóvember 2025.
Svar

Tillögunni er vísað frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins greiða atkvæði gegn frávísun.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Tillögunni er vísað frá þar sem vinna við stígagerð á svæðinu er nú þegar í undirbúningi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Við lýsum yfir furðu okkar vegna neikvæðrar afstöðu fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna til tillögu Sjálfstæðisflokksins um lagningu göngustíga í Gufunesi. Ljóst er að mikil þörf er á göngu- og hjólaleið meðfram Gufunesvegi sem og að Jöfursbás. Núverandi fyrirkomulag er óviðunandi og hefur augljósa hættu í för með sér fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Þær úrbætur, sem kveðið er á um í tillögunni ættu að vera í algerum forgangi en hér á fundinum fengust engin svör um hvort ráðist verði í þær á komandi ári.