Norðlingaholt - Breyting á skilmálum deiliskipulags fyrir tvíbýlishús T2 – Kólguvað, Krókavað, Lindarvað og Lækjarvað
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1038
25. nóvember, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á skilmálum deiliskipulags Norðlingaholts fyrir tvíbýlishús T2 á lóðunum við Kólguvað, Krókavað, Lindarvað og Lækjarvað. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilt verði að stækka íbúðir á 2. hæð ofan á bílgeymslu þar sem í dag eru svalir/útipallur annarrar hæðar. Heimilt verður að gera svalir á stækkunina sem snúa inn í garð, samkvæmt uppdr. T.ark arkitekta, dags. 8. september 2025. Einnig er lögð fram skýringarteikning T.ark arkitekta, ódags. og skilmálateikning T.ark arkitekta, ódags.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.