Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 360
Frestað
‹ 17
18
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins: Lagt er til að ráðist verði í víðtækar viðgerðir á götulömpum á eftirfarandi stöðum í Miðbænum í því skyni að tryggja viðunandi götulýsingu. Í Austurstræti og á Lækjartorgi eru allir götulampar óvirkir, þar á meðal lampar, sem eiga að þjóna hinni fjölförnu skiptistöð Strætó, sem þar er. Í Lækjargötu eru allir götulampar óvirkir á kaflanum milli Laugavegar og Hverfisgötu, um tíu talsins. Á Laugavegi eru hátt á fjórða tug ljósastaura óvirkir, þar af allir á kaflanum frá Frakkastíg vestur að Bankastræti. Í Bankastræti eru allir götulampar óvirkir en þeir eru um átján talsins. Á Skólavörðustíg eru um 38 ljósastaurar óvirkir, þar af allir á kaflanum frá Bergstaðastræti að Laugavegi. Í Pósthússtræti eru flestir ljósastaurar í götunni óvirkir eða um 22 talsins. Í Tryggvagötu er um 21 götulampi óvirkur, þar af allir milli Pósthússtrætis og Lækjargötu. Í Hafnarstræti eru um ellefu götustaurar óvirkir, þar af allir milli Pósthússtrætis og Tryggvagötu. Allir sjö ljósastaurarnir í Veltusundi eru óvirkir og tveir af þremur í sundinu milli Veltusunds og Thorvaldsensstrætis. Um fimmtán götulampar eru óvirkir við austanverða Vesturgötu, Mjóstræti og Grófina. Fjórir götulampar eru óvirkir við horn Geirsgötu, Tryggvagötu og Miðbakka. Ekki er um tæmandi upptalningu að ræða.
Svar

Frestað