Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um úrbætur í þágu gangandi og hjólandi vegfarenda á gatnamótum Kirkjuteigs og Reykjavegar, sbr. 15. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 12. nóvember 2025.
Lögð fram svohljóðandi breytingartillaga fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Lagt er til að í stað „Gangbrautarljós eða snjallljósabúnaður verði sett upp“ komi „Samgöngustjóra verði falið að meta hvaða úrræði verði nýtt til að hægja á umferð og auka öryggi“.
Breytingartillagan er samþykkt. Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.